Published August 30, 2024 | Version v1
Report Open

Útrás Krakkar kokka: Aðlögun og prófun Verkefnis- og verklagslýsingar. / The edutainment Kids cuisine for engagement, education and empowerment of the next generation towards more healthy and sustainable food habits

Description

Megin viðfangsefni verkefnisins BlueProject var verðmætasköpun úr vannýttu fisktegundinni "Sarrajão" (Sarda sarda), sem finnst undan ströndum Portúgals. Þessi fisktegund er hinsvegar ekki markaðssett í dag til manneldis þar sem hún hefur töluvert magn af beinum og þykkt roð sem erfitt er að fjarlægja. Hins vegar er næringargildi sarrajão töluvert hátt.

Aðkoma Matís að verkefninu var að styðja við að efla áhuga og fræðslu til næstu kynslóðar í átt að hollum og sjálfbærum matarvenjum í Portúgal. Þetta var framkvæmt með því að aðlaga verkefnis- og verklagslýsingu Krakkar Kokka (e. Kids Cuisine) sem byggir á skemmtimennt, og þá hugmyndafræði sem áður hefur verið þróuð, prófuð og innleidd í íslenskum grunnskólum (Krakkar Kokka: https://matis.is/matis_projects/krakkar-kokka/) að almennari aðstæðum en þeim sem finnast á Íslandi t.d. hvað varðar þætti eins og loftslag og ræktunarmöguleika. Efnið var gefið út á ensku og portúgölsku, og hugmyndafræði Krakka Kokka innleidd í portúgalska grunnskóla.

Verkefnis- og verklagslýsing Krakkar kokka á ensku fyrir skóla, ásamt kynningarefni og leiðbeiningum er aðgengilegt á vefsíðu Matís: https://matis.is/en/matis_projects/blueproject/.

Verkefnið Blue Project (Bioeconomy, PeopLe, SUstainability, Health) var styrkt af EEA Grants/Iceland Liechtenstein Norway grants/Bluegrowth Programme. Það var tveggja ára samstarfsverkefni milli Matís, GUIMARPEIXE – Comércio de Produtos Alimentares, SA, Portugal TINTEX Textiles, SA, Portugal UNIVERSIDADE DO MINHO, Portugal INSTITUTO POLITÉCNICO DE VIANA DO CASTELO, Portugal CÂMARA MUNICIPAL DE ESPOSENDE, Portugal AEP - Associação Empresarial de Portugal, CCI og Portugal VISUAL THINKING - Digital Organization, Lda, Portugal.

Files

Utras_Krakkar_Kokka_BlueProject_KidsCuisineMatisskyrsla.pdf

Files (6.0 MB)