Nextcloud-kerfið er opið og frjálst, og heldur þér við stjórnvölinn.

Eiginleikar:
* Einfalt, nútímalegt viðmót, með þema í samræmi við netþjóninn þinn
* Sendir skrár inn á Nextcloud-þjóninn þinn
* Deilir skránum þínum með öðrum
* Heldur eftirlætisskránum og möppunum þínum samstilltum
* Leitar í öllum möppum á þjóninum þínum
* Sjálfvirk innsending mynda og myndskeiða sem tekin eru með tækjunum þínum
* Heldur uppfærðu með tilkynningum
* Styður við marga notandaaðganga
* Öruggur aðgangur að gögnunum þínum með fingrafari eða PIN-númeri
* Samþætting við DAVdroid fyrir auðvelda uppsetningu á samstillingu dagatals og tengiliða

Tilkynntu um vandamál á https://github.com/nextcloud/android/issues og ræddu um þetta forrit á https://help.nextcloud.com/c/clients/android

Nýr í Nextcloud? Nextcloud er þinn eiginn vefþjónn til samstillingar, samskipta og deilingar á skrám. Kóði hugbúnaðarins er fullkomlega opinn og frjáls til afnota; þú getur hýst hann sjálfur eða borgað fyrirtæki fyrir að gera það fyrir þig. Á þennan máta, hefur þú sjálfur full yfirráð yfir myndunum þínum, dagatalinu, tengiliðaskránum, skjölunum þínum og öllu öðru tilheyrandi.

Skoðaðu fleira um Nextcloud á https://nextcloud.com